FALLAX, FYRSTA ÍSLENSKA VR MYNDIN

FALLAX, FYRSTA ÍSLENSKA VR MYNDIN

Háskólabíó, Hagatorg, 101 Reykjavík Kort

mán 28. sep 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

RIFF er meira en bara bíó!

Það er hægt að gera meira en horfa á kvikmyndir á RIFF! Á Litla sviðinu í Háskólabíó fara fram fjölbreyttir viðburðir sem þú vilt ekki missa af!

Upplifðu Fallax, fyrstu íslensku VR-kvikmyndina, eftir leikstjórann Owen Hindley og fjöllistahúsið Huldufugl, í Háskólabíói. Sérstakir VR-stólar og búnaður frá SagaVR leyfa áhorfendum að sökkva inn í sýndarheim myndarinnar.

Myndin verður sýnd í VR stólum tvisvar á hálftíma fresti - Skráðu þig hér https://tickets.riff.is/schedule/6ab27f2d9390dc306e42e926

Viðburðurinn hentar ekki fyrir yngri en 12 ára.

Með aðstoð vina flýr fangi úr fangelsi út í íslensku náttúruna. Eftir að vinirnir hverfa á undarlegan hátt, þá er fanginn dreginn inn í fantasíu heim þar sem tíminn tifar á annan máta, og náttúran tekur á sig mannsmynd. Loftfimleikarar voru teknir upp með hreyfiskynjarabúningum, en hreyfingar þeirra túlka karaktera og náttúruöfl. Þetta verður fyrsta íslenska myndin sem er gerð innan sýndarveruleika (e. Virtual Reality).

🗓️Sunnudag 27/9 & Mánudag 28/9

🕚17:00 - 20:30 báða daga

Flytjendur