Hljómsveitin Valdimar á Selfossi
Sviðið, Sviðið, Selfoss | Sviðið Kort
fös. 09.10.2026 21:00
Hljómsveitin Valdimar heldur tónleika á Sviðinu á Selfossi þann 9. október. Við hlökkum mikið til að koma aftur á Selfoss og spila á sviðinu enda er það frábær tónleikastaður.
Hljómsveitin hefur verið iðinn við kolann undanfarið, gefið út þrjú ný lög og vinnur að nýrri plötu. Lagið Karlsvagninn hefur notið mikilla vinsælda og meðal annars setið á toppi vinsældalista Rásar 2.
Á tónleikunum má búast við skemmtilegri blöndu af gömlum slögurum og glænýju efni.
Flytjendur
-
ValdimarHljómsveitin Valdimar mætir á svæðið og tekur sína stærstu slagara.