Söng- og kammertónleikar á Reykholtshátíð

Söng- og kammertónleikar á Reykholtshátíð

Reykholtskirkja, Reykholtsvegur, 320 Reykholt Kort

lau. 25.07.2026 20:00

ISK 4500.00
Miðar / Skráning
ISK 4500.00
Miðar / Skráning

Söng- og kammertónleikar á Reykholtshátíð

Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran og píanóleikarinn Elena Postumi leiða fjölbreytta dagskrá þar sem rómantísk tónlist er í forgrunni. Á efnisskránni eru verk eftir þrjú af helstu tónskáldum 19. aldar, Johannes Brahms, Antonín Dvořák og Richard Strauss, sem hvert um sig túlka ást, söknuð og ljóðræna fegurð á sinn einstaka hátt.

Meðal verka kvöldsins eru Zwei Gesänge, op. 91, eftir Brahms fyrir mezzósópran, víólu og píanó – ein af innilegustu og persónulegustu tónsmíðum hans. Einnig verður flutt úrval úr Sígaunaljóðum Brahms auk Ástarljóða eftir Dvořák.

Á milli söngverkanna verður flutt Capriccio fyrir strengjasextett eftir Richard Strauss, sem hann samdi sem inngang að samnefndri óperu. Hér hljómar verkið í flutningi allra strengjaleikara hátíðarinnar.

Flytjendur:
Arnheiður Eiríksdóttir, mezzósópran
Elena Postumi, píanó
Pétur Björnsson, fiðla
Joaquín Páll Palomares, fiðla
Guðbjartur Hákonarson, víóla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
Sigurgeir Agnarsson, selló

Sjá nánar á heimasíðu Reykholtshátíðar, reykholtshatid.is       

Sjáumst á Reykholtshátíð!
Húsið opnar kl. 19:30

Miðaverð: 4.500 kr.