Ég er Carola - Tónlist, sögur og minningar
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
mán. 30.11.2026 20:00
Carola kemur til Íslands með einstaka tónleikasýningu
Ein ástsælasta og farsælasta söngkona Norðurlanda, Carola Häggkvist, kemur til Reykjavíkur í nóvember með glænýja tónleikasýningu sem er ólík öllu því sem aðdáendur hennar hafa áður upplifað.
Carola hefur verið meðal skærustu stjarna sænskrar dægurtónlistar í meira en fjóra áratugi. Frá því hún sló í gegn með laginu Främling árið 1983 hefur hún selt milljónir platna, unnið Eurovision og skipað sér sess sem einn vinsælasti tónlistarmaður Norðurlanda.
Nú leggur hún af stað í sérstakt tónleikaferðalag um Norðurlönd þar sem hún býður áhorfendum inn í persónulegan heim sinn. Ásamt píanóleikaranum Will Oaks flytur hún lögin sem hafa markað feril hennar og fléttar á milli þeirra sögum og minningum úr lífi sínu.
Á efnisskránni verða ekki aðeins sígild lög á borð við Främling, Fångad av en stormvind og Säg mig var du står, heldur einnig lög sem Carola hefur sjaldan eða aldrei áður flutt á tónleikum. Útkoman verður innileg og einstök kvöldstund þar sem tónlistin og sögurnar mynda eina heild.
Tónleikaferðalagið tengist útgáfu fyrstu sjálfsævisögu Carola, Jag är Carola, þar sem hún segir í fyrsta sinn frá ævi sinni með eigin orðum. Sú einlæga nálgun endurspeglast í tónleikunum sem verða bæði persónulegri og nánari en það sem áhorfendur eiga að venjast.
Íslenskir tónleikagestir fá því einstakt tækifæri til að sjá eina stærstu tónlistarstjörnu Norðurlanda í allt öðru ljósi en áður – í sýningu þar sem tónlistin, sögurnar og lífsreynslan fá að njóta sín.