Magnús Jóhann 30 ára - Stórtónleikar í Háskólabíó

Magnús Jóhann 30 ára - Stórtónleikar í Háskólabíó

Háskólabíó | Salur 1, Hagatorg, 107 Reykjavík Kort

fim. 17.09.2026 20:00

Magnús Jóhann 30 ára - Stórtónleikar í Háskólabíó

Píanóleikarinn og tónskáldið Magnús Jóhann Ragnarsson hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi undanfarin 10 ár frá því hann lenti í þriðja sæti á Músíktilraunum. Hann hefur gefið út fjölda platna undir eigin nafni, samið kvikmyndatónlist, pródúserað plötur hjá öðru listafólki, stofnað tónlistarhátíð, unnið að sjónvarpsþáttagerð auk þess að koma fram á fjölda tónleika á ári hverju svo að nokkuð eitt sé nefnt.

Þann 17. september verður hann 30 ára og hyggst fagna afmælinu með stórtónleikum í Háskólabíói. Þá verða liðin 10 ár frá útgáfu fyrstu sólóplötu hans, Pronto.

Á tónleikunum verður mörgu af helsta samstarfsfólki Magnúsar smalað saman og leikin lög sem spanna allan feril hans. Magnús og GDRN munu leika lög af geysivinsælum dægurlagaplötum sínum, þungavigtarmenn úr djassheiminum munu láta sjá sig og flytja lög af rómuðum samstarfsplötum. Magnús mun einnig flytja ný lög og gömul einn síns liðs, vopnaður hljóðgervlum af ýmsum toga. Svo er aldrei að vita hvort óvæntir gestir knúi að dyrum.

Magnús Jóhann hefur í tvígang verið valinn tónlistarflytjandi ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum og hefur auk þess hlotið fjölda tilnefninga og viðurkenninga fyrir verk sín. Þessum viðburði ætti enginn tónlistarunnandi að missa af!


Flytjendur

  • Magnús Jóhann
    Magnús Jóhann

    Óvenju fjölhæfur tónlistarmaður á flestum sviðum tónlistar; tónskáld, hljómborðsleikari og upptökustjóri.

  • GDRN
    GDRN

    Söngkona, þekkt fyrir jólalög og samstarf við Magnús Jóhann.

  • Skúli Sverrisson
    Skúli Sverrisson

    Tónlistarmaður sem mun koma fram með Ólöfu Arnalds.

  • Óskar Guðjónsson
    Óskar Guðjónsson

    Gestur kvöldsins.