Fögnum degi íslenskrar náttúru
RVK Bruggfélag Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Kort
mið 16. sep 2026 17:00
Opið öllum, gaman saman og bjór í boði á degi íslenskrar náttúru. 🥦🌺✨
Náttúruverndarar koma saman til að fagna náttúrunni og umhverfisvænni framtíð á Degi íslenskrar náttúru 16.september.
Landvernd, náttúruverndarsamtök Íslands og fleiri samtök standa að boðinu, sem er óformleg gleðistund, þar sem allt fólk með áhuga á náttúruvernd og umhverfismálum er velkomið, til að ræða stóru málin framundan í afslöppuðu umhverfi.🐝☺️🙌
Öll eru velkomin, hvort sem þið komið ein eða með vinum.
Komdu á fögnuð á Degi íslenskrar náttúru, miðvikudaginn 16. september kl. 17:00 í Tónabíó.
🎊Bjór á dælu fyrir fyrstu gestina.
🌿Skilaboðakassi opinn fyrir hugmyndir og kveðjur til náttúrunnar.
🥨Dagskrá vetrarins kynnt
🎁 Merch, og listagallerí -markaður- (Munið þið eftir skúlptúrunum hans Ása kisa?)
Góð stemning og frábær félagsskapur.
Vertu með okkur í tilefni dagsins 🎈🪁🪻við hlökkum til að sjá þig!