Fræðimaður verður forseti — dagskrá til heiðurs Kristjáni Eldjárn

Fræðimaður verður forseti — dagskrá til heiðurs Kristjáni Eldjárn

Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgata 41, 101 Reykjavík Kort

fös 4. des 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

Þjóðminjasafn Íslands og Félag fornleifafræðinga standa árlega fyrir dagskrá í tilefni afmælisdags dr. Kristjáns Eldjárn (1916-1982). Nú eru 110 ár liðin frá fæðingu hans.

Kristján var þriðji forseti Íslands og gegndi embættinu á árunum 1968–1980. Hann var fornleifafræðingur og starfaði sem þjóðminjavörður áður en hann varð forseti og helgaði stóran hluta ævinnar rannsóknum og miðlun íslensks menningararfs.

Arthur Knut Farestveit, ritari Félags fornleifafræðinga stýrir dagskránni

⭐Dagskrá

Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður setur viðburðinn.

Kristján Eldjárn og myndin af fornþjóðinni

Adolf Friðriksson, fornleifafræðingur og forstöðumaður Fornleifastofnunar Íslands

Horfinn heimur? Hugmyndir Kristjáns Eldjárns um embætti forseta Íslands

Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og sagnfræðiprófessor

Kristján Eldjárn í lifandi myndum

Gunnar Tómas Kristófersson, sérfræðingur í rannsóknum við Kvikmyndasafn Íslands

Þjóðminjasafnið býður upp á léttar kaffiveitingar að dagskrá lokinni

Öll velkomin, enginn aðgangseyrir!