Frímann Kjerulf og Þórhallur Magnússon: Er líf skilyrði vitundar?
Lífspekifélagið, Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavík Kort
fös 20. nóv 2026 19:30
Bústaðu viðburðinn!Í þessu spjalli munu þeir Frímann Kjerúlf og Þórhallur Magnússon ræða hugmyndir um vitund eins og þær eru að birtast okkur í dag í gegnum nýjar byltingar í líffræði og gervigreindarfræðum. Eftir tvær stuttar kynningar hefst spjall, sem vonandi gestir taka þátt í, um eðli vitundar.
Frímann Kjerúlf hefur bakgrunn í myndlist, eðlisfræði, reikniverkfræði, gervigreindarforritun og skynvíkkandi meðferð. Áhugi hans á vitund sprettur úr þessum ólíku sjónarhornum á skynjun, upplifun og tengsl hugar og efnis.
Þórhallur Magnússon er prófessor í tilraunakenndum hugvísindum við Háskóla Íslands. Hann leiðir verkefnið “Intelligent Instruments” og hefur rannsakað gervigreind, sköpun og vitund í áratugi ásamt starfi sínu sem deildarforseti tónlistardeildar Sussex háskólans.
Að erindi loknu er boðið upp á kaffi og meðlæti á efri hæð hússins.