From Stress to Serenity - ókeypis aðgangur

From Stress to Serenity - ókeypis aðgangur

Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort

mán 19. okt 2026 19:30

Bústaðu viðburðinn!

Verið hjartanlega velkomin á fyrirlesturinn "From Stress to Serenity" sem fer fram mánudaginn 19. okt. kl. 19:30-21:00. Gestafyrirlesari: Yogesh Sharda Staðsetning: Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Rvk. Athugið að fyrirlesturinn fer fram á ensku. Aðgangur er ókeypis, skráning óþörf og öll eru hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Um gestafyrirlesarann Yogesh Sharda hefur iðkað Raja Yoga hugleiðslu í yfir 50 ár en hann hóf sína andlegu vegferð á unga aldri. Hann fæddist í Malawi an ólst upp í London og Oxford og er á meðal eftirsóttustu kennara Brahma Kumaris hugleiðsluskólans. Hann býr í Istanbúl og leiðir hugleiðslumiðstöðvar BK í Tyrklandi auk þess að ferðast um heiminn til að halda námskeið og vinnusmiðjur. Yogesh hefur einstaklega sterka og hlýja nærveru, miðlar efninu á praktískan hátt en jafnframt af mikilli dýpt. Húmorinn og léttleikinn eru heldur aldrei langt undan og hann er lifandi fyrirmynd þess sem hann kennir.

Flytjendur