Furðufuglar á hugarflugi

Furðufuglar á hugarflugi

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

lau 10. okt 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

List án landamæra opnar samsýninguna „Furðufuglar á hugarflugi” með verkum eftir listafólk Listvinnzlunnar

HVAR: Gerðuberg 3–5, 111 Reykjavík

HVENÆR: Laugardaginn 10. október kl. 13:00–15:00

✨ Sýningin stendur til 6. nóvember

Neistinn að sýningunni er spurningin hvernig er Ísland og hver erum við?

Hvar leynast ævintýri Íslands? Við sjáum álfa og fugla í ægifagurri náttúru, hraun, harðfisk, ull og svart skammdegi. En líka poppvíkinga og partýlunda undir öskrandi sól. Og Dimmalimm. Þarna eru geimverur bak við gardínur, glaðir vinnuþjarkar, aular á stuttbuxum og alls konar fólk. Ísland er alls konar. Það er heitt á könnunni og alltaf nóg til frammi.

Hvað sérð þú? Sérðu furðufugla á hugarflugi?

Sýningin er í umsjá Elínar Sigríðar Maríu Ólafsdóttur og Kolbeins Jóns Magnússonar úr Listvinnzlunni, listhópi hátíðarinnar 2026. Þau hafa vandlega valið verk eftir fjölbreyttan hóp listafólks úr Listvinnzlunni og víðar að. Þetta er í fyrsta sinn sem fatlað listafólk sér alfarið um sýningarstjórn á sýningu Listar án landamæra.

LISTVINNZLAN ER LISTHÓPUR LISTAR ÁN LANDAMÆRA 2026

Listvinnzlan er fjölbreyttur hópur listamanneskja sem stundar faglega listsköpun. Þar vinnur listafólk að eigin verkum með ólíka miðla og efnivið, meðal annars teikningu, málverk, skúlptúr, myndasögur, kvikmyndalist og gjörninga. Listvinnzlan var stofnuð árið 2022 af Margréti M. Norðdahl og hefur á fáum árum vaxið ört og orðið mikilvægur vettvangur innan íslensks lista- og menningarlífs.

Verið öll hjartanlega velkomin á sýninguna í Gerðubergi

Aðgengi í Gerðubergi er grænt – engir þröskuldar, tvöfaldar rennihurðir við inngang, lyfta á milli hæða, aðgengilegt salerni á neðri hæð og merkt bílastæði fyrir framan húsið.

Sýnendur eru:

Atli Már Indriðason

Ármann Kummer Magnússon

Benedikta Rostan

E.S.M.Ó. Elín S. M. Ólafsdóttir

Frida Adriana Martins

Garðar Reynisson

Gígja Garðarsdóttir

Guðmundur Stefán Guðmundsson

Gunnar Már Pálsson

Harpa Rut

Helga Matthildur Viðarsdóttir

Ísak Óli Sævarsson

Katrín Guðrún Tryggvadóttir

Kolbeinn Jón Magnússon

Lára Lilja Gunnarsdóttir

Lilja Dögg Birgisdóttir

Þórir Gunnarsson - Listapúkinn

Óskar Theódórsson

Sigrún Huld Hrafnsdóttir

Þorvaldur Arnar Guðmundsson