Fyrirlestur: Sex alhæfingar um óperuformið
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands, Skipholt 31, 105 Reykjavík Kort
lau 10. okt 2026 14:00
Bústaðu viðburðinn!Atli Ingólfsson, prófessor í tónsmíðum við LHÍ, heldur næsta laugardag erindi á vegum Richard Wagner félagsins, í húsnæði Tónlistardeildar LHÍ, Skipholti 31.
Erindið er að nokkru byggt á samnefndri grein Atla sem birtist í Skírni árið 2017 en með seinni tíma viðbótum. Viðfangsefnið má segja að séu hugleiðingar og alhæfingar sprottnar af vinnu höfundarins við tónleikhúsverk og í raun um það hvernig hann fór loks að „skilja“ óperuformið, þótt einhverjum gæti þótt skilningur hans nýstárlegur. Í stuttu máli má segja að hann trúi því að óperan sé einfaldlega samheiti fyrir gott leikhús.
Fyrirlesturinn er um klukkutími að lengd.
Atli Ingólfsson nam tónsmíðar og heimspeki í Reykjavík og síðan á Ítalíu og Frakklandi, og bjó síðan um árabil á Ítalíu og samdi tónlist fyrir flytjendur víða um Evrópu. Hann hefur sett á svið fjögur tónleikhúsverk sín og fjölmörg verka hans hafa verið tekin upp og gefin út. Nýverið kom út heftið Tíu lög fyrir góða kóra með helstu kórlögum hans, en 2022 gaf hann út verkið Elsku Borga mín fyrir 24 raddir og með því bókina Veðurskeyti frá Ásgarði, með hugleiðingum nokkurra höfunda um efni og texta tónverksins. Atli hefur að auki verið iðinn við að gefa út á riti hugleiðingar sínar um tónlist og menningu, meðal annars í Þráðum, vefriti tónlistardeildar LHÍ, þar sem hann hefur verið prófessor í tónsmíðum frá 2016.