Fyrsti fundur EVG að hausti

Fyrsti fundur EVG að hausti

Salur Félags eldri borgara í Reykjavík, Stangarhylur 4, 110 Reykjavík Kort

mið 14. okt 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Eldri Vinstri græn ( EVG) halda sínu striki og halda fundi annan miðvikudag í hverjum mánuði. Fyrsti fundur EVG í haust verður þann 14. október kl. 20.00 að Stangarhyl 4, húsnæði FEB í Reykjavík. Öll velkomin !

Dagskráin er komin og verður sem hér segir;

1. Bjarki Hjörleifsson, varaformaður VG, ávarpar fundinn

2. Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar: “Um gagnaver, gervigreind og fagvæðingu”

3. Kaffi, kleinur og spjall

4. Guðni Th. Jóhannesson prófessor í sagnfræði og fyrrv. forseti: “Alþýðubandalagið vann þorskastríðin” Hverjir segja söguna og hvers vegna?

5. Og söngur eins og ævinlega. Páll Eyjólfsson, Sigurður Alfonsson og Lena Rist leika undir , Sigursveinn Magnússon stórnar söng.

Fundarstjóri: Guðrún Hallgrímsdóttir að venju

Kaffihlé og kleinur um kl.21.00. Munið seðil í kaffisjóðinn – Sem fyrr er fólk hvatt til að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir.

Undirbúningsnefnd EVG.