Gamanmyndasýning á Menningarnótt

Gamanmyndasýning á Menningarnótt

Landnámssýning, Aðalstræti 16, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 17:00

Í tilefni af Menningarnótt, 22. ágúst kl. 16-21 mun elsta hús miðborgarinnar, Aðalstræti 10 lifna við. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Þá gefst einstakt tækifæri til að kynnast sögu Aðalstrætis 10 á lifandi hátt. Starfsfólk safnsins verður í búningum frá ólíkum tímabilum og til viðræðu um húsið, íbúa þess og þær breytingar sem orðið hafa á borginni í gegnum aldirnar. Kl. 16:00-18:00 verður hægt að fylgjast með hárgreiðslukonu við störf þar sem hún skapar hárgreiðslu í anda hárgreiðslustofu Jósefínu Antoníu Helgadóttur Zoëga Hobbs, sem hún rak einmitt í Aðalstræti 10 1927-1940.

Viðburðurinn er hluti af fjölbreyttri dagskrá Borgarsögusafns á Menningarnótt.
Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.