Gamlárshlaup ÍR - 50 ára afmæli
Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
fim 31. des 2026 12:00
Hlaupið fagnar 50 ára afmæli og við ætlum að gera daginn eftirminnilegan!
- Sérstakur 50 ára afmælispeningur
- Tónlist og stuð
- Gott í gogginn fyrir alla þátttakendur
- Frábær stemning á gamlársdag
Gamlárshlaup ÍR er skemmtileg blanda af keppnishlaupi, áramótaskemmtun og fjölskyldusamveru þar sem einstaklingar með ólík markmið og bakgrunn koma saman. Gleðin er ávallt við völd í Gamlárshlaupi ÍR, hvernig sem viðrar, en auk hefðbundinna keppnisbúninga mæta fjölmargir til leiks íklæddir grímubúningum.
Á meðan sumir leggja kapp á að bæta sinn besta tíma á hraðri og flatri braut þá berjast aðrir um um að hljóta verðlaun fyrir frumlegasta búninginn eða einfaldlega hafa gaman af.