Garðabæjargala 2026
Garðatorg 7, 210 Garðabær, Iceland, Garðatorg 7, 210 Garðabær Kort
sun 25. okt 2026 15:00
Garðabæjargala fer fram í þriðja sinn á Garðatorgi 7, eftir sérlega vel heppnuð gölu á undanförnum árum. Nokkrir fremstu óperusöngvarar landsins koma fram og trylla lýðinn! Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Garðabæ og tekur um eina klukkustund. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum - svo verður líka heitt á könnunni.
Garðabæjargala er fjölskylduvænn viðburður og það er í lagi að koma og fara að vild.
Björk Níelsdóttir, sópran
Svanhildur Pálmadóttir, mezzó-sópran
Gissur Páll Gissurarson, tenór
Unnsteinn Árnason, bassi
Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanisti