Djasskrakkar spinna í Grófinni

Djasskrakkar spinna í Grófinni

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 15:00

Djasskrakkar er mosfellsk djasshljómsveit skipuð börnum á aldrinum 11-16 ára. Þrátt fyrir ungan aldur þá hafa þau spilað saman í 3 ár og komið fram á fjölda tónleika og hátíða, svo sem Listahátíð Reykjavíkur, Jazzhátíð Reykjavíkur, Í túninu heima, Kids in Jazz (í Osló) og Barnadjass í Mosó, en Djasskrakkar eru einmitt gestgjafar síðastnefndu hátíðarinnar. Á menningarnótt munu þau spila fjölbreytta djassstandarda.

Hljómsveitina Djasskrakka skipa Edda Margrét Jonasdóttir 12 ára (klarinett og alt-saxófón), Emil Huldar Jonasson 15 ára (píanó), Helga Margrét Einarsdóttir 11 ára (trommur), Rakel Elaisa Allansdóttir 13 ára (trompet), Sigríður Sóllilja Einarsdóttir 16 ára (kontrabassi) og Svandís Erla Magnúsdóttir 15 ára (alt-saxófónn). Sveitin var stofnuð árið 2023 og hafa þau verið gestgjafar tónlistarhátíðarinnar Barnadjass í Mosó frá upphafi. Þau eru í hljóðfæranámi í tónlistardeild Listaskóla Mosfellsbæjar og í Skólahljómsveit Mosfellsbæjar. Þau hafa fengið þann heiður að vinna með og frumflytja ný lög eftir Karl Olgeirsson (2024) og Sunnu Gunnlaugsdóttur (2025), sem voru sérstaklega pöntuð af hátíðinni Barnadjass fyrir viðkomandi ár. Lögin hafa verið flutt á Barnadjass í Mosó, Kids in Jazz í Osló og Jazzhátíð Reykjavíkur. Fyrir Menningarnótt fengu þau tónlistarkonuna Önnu Grétu Sigurðardóttur með sér í lið við undirbúning.

Flytjendur