Ertu með eitthvað á prjónunum? Ertu að hekla fallegt sjal eða sauma út púða?
Á fimmtudögum kl. 13:30-14:30 er hannyrðastund í Borgarbókasafninu Spönginni frá september fram í lok maí. Öll velkomin, byrjendur og lengra komin, í notalega stund í blágrænu sófunum á annarri hæð.
Við spjöllum um daginn og veginn, fáum okkur kaffi og sinnum handavinnunni í góðum félagsskap.
Við eigum líka mikið úrval af alls kyns bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim.
Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Óli Gunnarsson - Specialist
halldor.oli.gunnarsson@reykjavik.is | 411 6230
Hannyrðastund í Spönginni
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
fim. 10.09.2026 13:30