Vertu með okkur í að kanna dagbókarskrif og skrif á stuttum texta á íslensku innblásin af hversdagslegum stundum. Við munum nota umhverfi okkar - ýmsa staði í bókasafninu og fólkið sem gengur fram hjá - sem hvata til að skapa sögur.
Þessi vinnustofa er sérstaklega opin þeim sem skrifa á íslensku eða vilja byrja að skrifa á tungumálinu. Í hverri viku byrja þátttakendur á því að velja sér stað í bókasafninu fyrir skriftíma sinn. Staðirnir verða valdir af leiðbeinanda okkar, Maó - skáldi og rithöfundi. Í lok hverrar lotu munum við hittast í hóplestri þar sem þátttakendur geta deilt verkum sínum, gefið endurgjöf og tekið þátt í umræðum.
Þátttaka ókeypis, engin skráning, bara mæta.
Þetta verkefni er hluti af samljóða - ritsmiðjuseríunni og samvera verkefni. Samvera er styrkt af Þróunarsjóði innflytjenda.
Nánari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is
Það sem ég sé en ekki það sem ég veit - Ritsmiðjur með Maó Alheimsdóttur
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
mið. 07.10.2026 16:30
Flytjendur
-
Maó AlheimsdóttirVeðurfregnir og jarðarfarir