Í Saumahorninu í Árbæ er boðið er upp á aðstoð einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina og eru Andzelina Kusowska Sigurðsson og Elínborg Ágústsdóttir klæðskerar gestum innan handar, veita ráðgjöf við saumaskapinn og kennslu á saumavélarnar.
Saumaaðstoðin er upplögð fyrir þau sem eru að velta einhverju fyrir sér varðandi saumaskapinn, hvort sem um byrjendur eða lengra komna er að ræða. Það er alltaf gott að fá ráðgjöf og spjalla um þau verkefni sem unnið er að.
Nauðsynlegt er að skrá sig í aðstoðina á heimasíðunni okkar með 2 vikna fyrirvara.
Í Saumahorninu Árbæ er góð aðstaða fyrir þau sem hafa gaman af saumaskap en þar er að finna tvær venjulegar saumavélar og eina overlock vél. Það er því hægt að fá útrás fyrir sköpunargleðina; sníða, sauma eða gera við flíkur.
Gott er að bóka tíma fyrirfram til að vera viss um að komast að á þeim tíma sem óskað er eftir en vélarnar eru þó aðgengilegar hafi enginn tekið frá tíma.
Saumahornið | Aðstoðartímar
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort
mán. 07.09.2026 16:00
Flytjendur
-
Andzelina Kusowska Sigurðsson
Klæðskeri
-
Elínborg Ágústsdóttir
Klæðskeri