Lalli töframaður í Landsbankanum

Lalli töframaður í Landsbankanum

Landsbankinn, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 13:30

Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 24. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að venju upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Fjörið fer fram bæði í Reykjastræti og við Hörputorg, þar sem Landsbankinn stendur fyrir dagskrá í samstarfi við Hörpu.
Lalli töframaður opnar dagskrána í Reykjastræti.
Fjörið hefst með Lalla töframanni, einum fjölhæfasta skemmtikrafti landsins. Lalli kann svo sannarlega að heilla bæði unga sem aldna og má búast við töfrum, gleði og góðri stemningu í Reykjastræti 6.
Á svæðinu verður einnig nóg um að vera fyrir yngstu gestina – boðið verður upp á blöðrur, candy floss, popp og fleira skemmtilegt. Sproti mætir að sjálfsögðu líka á svæðið og tekur þátt í fjörinu!
Heildardagskrá í Landsbankanum á Menningarnótt:
13.30 - Lalli töframaður
14.30 - Hnokkar og sveifluball
15.30 – Sólon og Dimma dúskur
16.30 – Emmsjé Gauti

Flytjendur