Langar þig að rölta um miðborg Reykjavíkur og skoða skemmtilegar sýningar á fjölbreyttum menningarstofnunum á meðan þú æfir þig að spjalla á íslensku?
Lærðu íslensku með okkur og hittu fleiri sem eru líka að læra! Öll velkomin, líka byrjendur.
Við hittumst á Torginu, 1.hæðinni á Borgarbókasafninu Grófinni (í miðbænum), fáum okkur kaffi/te og förum yfir orð sem nýtast í heimsókn dagsins, áður en við röltum saman á sýninguna og kynnumst borginni betur.
Leiðsagnirnar fara fram á íslensku en reyndir íslenskukennarar fylgja hópnum og aðstoða if á þarf að halda.
Engin skráning, bara mæta!
Skoðum og spjöllum - langar þig að æfa þig í íslensku?
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
lau. 19.09.2026 11:30