Í frændgarðinum

Í frændgarðinum

Grettisgata 6A, Grettisgata 6a, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 16:00

Tónleikar þar sem fram koma systkinabörn og gestir þeirra.
Systkinabörnin Björn Óli Harðarson, Elísabet Sesselja Harðardóttir (Ella) og Haukur Lár Hauksson eru öll tónlistarfólk. Þau ætla að leika nokkur vel valin lög saman og í sitt hvoru lagi ásamt gestum. Viðburðurinn fer fram í litlum garði við Grettisgötu 6A (bakhús) og tekið verður á móti eins mörgun gestum eins og rýmið leyfir. Þau leika hugljúfa tónlist, popp, indý og klassíkt rokk.

Fyrst á svið eru systkinabörnin ásamt gestaleikurum.
Þá spilar Björn Óli eigin tónlist á gítar og syngur.
Ella tekur nokkur lög úr sínu tónlistarprógrammi ásamt Birni Óla bróður sínum og gestaleikurum.
Að loku stígur Frýs á stokk og leikur eigið efni.
Það er aldrei að vita hvað gerist svo en stemmningin á staðnum fær svolítið að ráða því.

Flytjendur