Örleiðsögn um sýningar
Listasafn Reykjavíkur | Kjarvalsstaðir, Flókagata 24, 105 Reykjavík Kort
mán. 29.06.2026 14:00
Daglegar stuttar leiðsagnir bjóða upp á ferska og lifandi nálgun að sýningum Listasafns Reykjavíkur. Starfsfólk safnsins leiðir gesti um valin verk og opnar nýjar leiðir inn í listina á skýran og aðgengilegan hátt.
Í sumar eru tvær áhugaverðar sýningar á Kjarvalsstöðum: Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd í Vestursal og Kjarval og 20. öldin. Í leiðsögninni fá gestir tækifæri til að staldra við, skoða nánar og dýpka skilning sinn á völdum verkum — stutt, skýrt og hnitmiðað.