Traces of Us fjallar um hvernig líf okkar snertast og þau spor sem við skiljum eftir hvert hjá öðru. Verkið er dans- og loftfimleikasýning sem er um það bil klukkustund að lengd og er ætluð til að ferðast um miðbæinn með viðkomu á þremur til fjórum stöðum.
Um er að ræða staðbundið sviðsverk sem nýtir byggingarlist og landslag til að segja sögu um hvernig líf fólks, sem annars eru fjarlæg hvert öðru, geta mæst á óvæntan hátt á Íslandi. Verkið minnir jafnframt á mikilvægi þess að hægja á sér, svo hægt sé að taka eftir því hvernig leiðir okkar liggja saman, við staði, fólk, tilfinningar og upplifanir.
Þessi hugsun birtist bæði í sambandi dansaranna innbyrðis og er jafnframt boð til áhorfenda um að staldra við, hægja á sér og veita einhverju athygli.