Blómaunnendur eru hjartanlega velkomnir á bókasafnið með pottaplöntur og afleggjara til að skiptast á við aðra. Að venju er skiptimarkaður að hausti en undanfarin 7 ár hefur markaðurinn verið haldinn í maí og september.
Inni á safninu verður pláss fyrir inniblómin og á svölunum er hægt að vera með garðplöntur. Sömuleiðis má koma með potta og annað sem tilheyrir ræktuninni og skipta.
Plöntuáhugafólk er er hvatt til að koma og gera góð skipti. Þau sem ekkert hafa til skiptanna eru líka velkomin því það er aldrei að vita nema hægt verði að fá plöntu eða afleggjara án þess að gefa á móti. Einnig er þetta upplagt tækifæri fyrir þá sem eiga umfram, að deila með öðrum – og ekki síður að spjalla við aðra ræktendur um umhirðu plantanna og þetta skemmtilega áhugamál.
Nánari upplýsingar veitir:
Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Árbæ
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is, s. 411 6250
Plöntuskipti | Blóm og græðlingar
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort
sun. 06.09.2026 13:00