Frítt inn á Ljósmyndasafn Reykjavíkur á Menningarnótt

Frítt inn á Ljósmyndasafn Reykjavíkur á Menningarnótt

Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 13:00

Í tilefni af Menningarnótt verður ókeypis inn á Ljósmyndasafn Reykjavíkur kl. 13-21 þann 22. ágúst.
Á safninu eru nú tvær sýningar. Sýningin "Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum" og sýningin "Götumyndir".

Á sýningunni "Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum" leitast Þórdís Erla Ágústsdóttir ljósmyndari við að fanga það óáþreifanlega í daglegu lífi fólks inn á heimilum þess og á öðrum stöðum sem eru því mikilvægir.Hún beinir sjónum að tengslum og tilfinningum á milli einstaklinga. Náttúran er órjúfanlegur hluti af umhverfinu og hefur mótandi áhrif á tilfinningalíf og gjörðir. Til að sýna hversu samofið þetta tvennt er stillir Þórdís Erla fram kraftmiklum stemningum af íslenskri náttúru innan um myndirnar af fólkinu.
Þórdís Erla hefur myndað fólkið, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Hún velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu.
Sýningin "Götumyndir" eftir félaga í Fókus - Félagi áhugaljósmyndara stendur nú yfir í Skotinu. "Götumyndir" nefnist fimmta sýning félaga úr Fókus – Félagi áhugaljósmyndara sem mun taka yfir sýningarrýmið SKOTIÐ í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
„Vegir liggja til allra átta, á þeim verða skil;… ” Þetta textabrot, úr ljóði Indriða G. Þorsteinssonar, gæti átt við götuljósmyndun. Um er að ræða vítt hugtak sem oft fangar hversdaglega atburði og athafnir í daglegu lífi ókunnugs fólks.
Faðir götuljósmyndunar, Henri Cartier-Bresson, lýsti henni þannig í viðtali: „Það er þetta skapandi brot úr sekúndu þegar þú tekur mynd. Augu þín sjá samsetningu eða tjáningu sem lífið býður upp á og þú verður að vita með innsæi hvenær á að smella af á myndavélinni. Það er augnablikið þegar ljósmyndarinn er skapandi.”
Sýnendur eru:
Einar Örn Jónsson
Ingunn Mjöll Sigurðardóttir
Einar Valur Einarsson
Jón Bjarnason
Stefán Hrafn Jónsson
Þóroddur Steinn Skaptason
Verið velkomin á Ljósmyndasafn Reykjavíkur á Menningarnótt!
Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.