Notalegar samverustundir í Borgarbókasafninu Úlfarsárdal með yngstu kynslóðinni.
Krílastundirnar eru óformlegar og notalegar samverustundir sem haldnar eru alla fimmtudagsmorgna frá kl. 10:30 - 11:30 frá byrjun september fram í lok maí.
Þetta er frábært tækifæri til að kynnast öðrum fullorðnum með lítil kríli, spjalla um lífið, tilveruna – og auðvitað börnin.
Á staðnum er heitt á könnunni fyrir þau fullorðnu, pelahitari fyrir yngstu gestina og góð skiptiaðstaða á salerni hússins.
Síðasta fimmtudag í hverjum mánuði bjóðum við upp á notalega söng- eða sögustund sem gleður bæði börn og fullorðna.
Krílahornið er svæði í stöðugri þróun og við tökum gjarnan á móti hugmyndum frá aðstandendum ungra barna.
Bókasafnið býður upp á mikið úrval af fræðandi bókum og tímaritum um uppeldi og umönnun ungbarna. Hægt er að glugga í efnið á staðnum og korthafar geta fengið það lánað heim.
Að sjálfsögðu er líka fjöldi skemmtilegra krílabóka til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum.
Hittumst í Krílahorninu í Úlfarsárdal – hlökkum til að sjá ykkur!
Tilvalið er að taka með sunddót og skella sér í Dalslaug eftir Krílastundina – laugin er í sömu byggingu og bókasafnið.
Nánari upplýsingar veitir:
Tinna Birna Björnsdóttir, sérfræðingur - viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is | 411 6270
Krílastund í Úlfarsárdal
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 124, 113 Reykjavík Kort
fim. 01.10.2026 10:30