Kvöldganga | Frá Frelsisgöngu yfir til Gleðigöngu

Kvöldganga | Frá Frelsisgöngu yfir til Gleðigöngu

Horn Lindargötu og Frakkastígs, Lindargata 39, 101 Reykjavík Kort

fim. 06.08.2026 20:00

Verið velkomin í ókeypis kvöldgöngu í miðbæ Reykjavíkur í tilefni Hinsegin daga, þar sem rakin verður saga frelsis- og gleðigangna hinsegin fólks. Gangan fer fram fimmtudaginn 6. ágúst kl. 20.00.🚶‍♀️
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjafræðingur og sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks leiðir gesti um slóðir gleðigöngunnar og forvera hennar í gegnum árin í miðbæ Reykjavíkur.
Eins og flestir vita í dag þá er Gleðiganga Hinsegin daga hápunkturinn hátíðarinnar, og er einn stærsti menningarviðburður landsins. En hvert var upphaf Gleðigöngunnar? Hvernig var tíðarandinn þegar hinsegin fólk blés fyrst til slíkrar göngu? Hvernig hafa áherslur breyst síðan sú fyrsta var gengin, og hvers vegna? Farið verður yfir söguna í stuttu máli og gengið á ýmsa staði í miðbænum sem tengjast menningu hinsegin fólks og göngunni góðu.
Gangan hefst á horni Lindargötu og Frakkastíg, þar sem einu sinni stóð fyrsta félagsheimili Samtakanna '78. Leiðsögnin fer fram á íslensku. Gangan tekur um 1 og ½ klukkustund. Öll hjartanlega velkomin.
Gangan er hluti af viðburðaröðinni Kvöldgöngur en að henni standa Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur.
Kvöldgöngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 – 21:30 yfir sumarmánuðina og eru öllum gjaldfrjálsar. Öll eru hjartanlega velkomin.
Athugið að göngurnar hefjast á mismunandi stöðum.
Fylgjast má með dagskránni á heimasíðum safnanna og á Facebook síðunni Kvöldgöngur. Heildardagskrá kvöldganga 2026 má finna hér: https://borgarbokasafn.is/kvoldgongur
Þátttaka er ókeypis en greiða þarf í ferjuna þegar göngurnar eru í Viðey.