Raqs Borealis – Eskandarany, egypskur þjóðdans frá Alexandríu
Myrkraverk Gallery, Skólavörðustígur 3, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 16:00
Magadanshópurinn "Raqs Borealis", sem æfir í Kramhúsinu, býður gestum Menningarnætur að kynnast Eskandarany, líflegum og glettnum þjóðdansi frá Alexandríu í Egyptalandi.
Eskandarany er þekktur fyrir léttan leikandi svip, glaðlega tónlist og lífsgleði. Dansararnir stíga á svið með stórar svartar slæður skreyttar pallíettum sem gefa dansinum einstakan glæsileika og undirstrika kvenlegar hreyfingar.
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.