Listamenn Gallerís Foldar setjast við trönur eða borð og mála eða teikna. Gestir fá innsýn inn í vinnubrögð listamannsins og gefst tækifæri á að fylgjast með listaverki verða til!
Kristbergur stundaði nám við Myndlista og Handíðaskóla Íslands og við Ríkisakademíuna í Amsterdam. Hann á að baki fjölmargar einkasýningar auk þátttöku í samsýningum heima og erlendis. Verk eftir Kristberg eru í eigu nokkurra helstu listasafna landsins og má þar nefna Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjanesbæjar og Hafnarborg. Kristbergur vinnur á ýmsa miðla, olíu, vatnsliti og grafík. Kristbergur hefur fengist við ljóðagerð í þónokkur ár og ljóð hafa verið gildur þáttur í verkum hans síðustu ár.
Kristbergur tekur á móti gestum og gangandi í Gallerí Fold á Menningarnótt milli kl. 14-16.
Listamaður að störfum - Kristbergur Ó. Pétursson
Gallerí Fold, Rauðarárstígur 14, 105 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 14:00
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.