Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur. Sundballettinn Eilífðin eru systurnar Margrét Erla Maack og Vigdís Perla Maack sem létu sundballettdrauma sína rætast og hafa verið með tíma reglulega í samstarfi við Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbæ. Þér er boðið í sundballetttíma í Vesturbæjarlaug!
Verkefnið er styrkt af sumarborginni. Um er að ræða þátttökutíma, ekki sýningu.
Við erum Sundballettinn Eilífðin, og þið eruð Sundballettinn Eilífðin.
Tíminn er öllum opinn - svo lengi sem fólk er synt og nær til botns. Ekki þarf að skrá sig, bara mæta.
Flytjendur
-
Sundballettinn Eilífðin
Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur.
-
Margrét Erla Maack
Burleskdrottning Íslands
-
Vigdís Perla Maack
Sundballetttími instructor