Jólagötumarkaður | Portinu í Hafnarhúsi

Jólagötumarkaður | Portinu í Hafnarhúsi

Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort

lau 5. des 2026 12:00

Bústaðu viðburðinn!

Það verður sannkölluð jólastemning í porti Hafnarhússins helgina 5.–6. desember þegar Listasafn Reykjavíkur í samstarfi við Visteyri býður til Jólamarkaðar í hjarta borgarinnar. Komdu við, fáðu þér heitt kakó eða jólaglögg og röltu á milli meira en 40 sölubása í leit að jólagjöfum og gersemum.

Á markaðnum má finna fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, listaverkum, vintage-gersemum, skartgripum, heimilisvörum, fatnaði og einstökum vörum frá spennandi söluaðilum.
Hér gefst einstakt tækifæri til að finna fallegar jólagjafir, styðja við skapandi fólk, gefa fallegum hlutum nýtt líf og njóta notalegrar aðventustemningar í hjarta borgarinnar.
Hvort sem þú kemur til að versla jólagjafir eða einfaldlega njóta jólastemningarinnar með heitan bolla í hönd, þá hlökkum við til að sjá þig í portinu.
Markaðurinn verður opinn á milli kl. 12:00–17:00 báða dagana