Hjálparhellur jólasveinanna

Hjálparhellur jólasveinanna

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

fim 10. des 2026 08:00

Bústaðu viðburðinn!

Í Fríbúðinni verður tekið frá sérstakt svæði þar sem hægt er að koma með lítil leikföng sem væru tilvalin fyrir jólasveina að gefa í skóinn: púsl, pez kalla, litla bíla, bangsa eða skraut til að hengja á jólatréð.
Tilvalin samverustund foreldra og barna að fara saman í gegnum heilleg leikföng og ákveða hvað má gefa jólasveininum, til að gefa öðrum börnum. Þannig græða öll, Börnin sem gefa dótið sitt læra um hringrásarhagkerfið og umhverfisvernd og jólasveinarnir fá gefins dót til að gefa áfram og minna rusl endar í náttúrunni.
Jólasveinum er boðið að laumast og taka sér það sem þeir halda að muni nýtast vel í skóinn.
Í Fríbúðinni í Gerðubergi eru allir hlutir ókeypis. Þangað getur þú komið þegar þig vantar eitthvað eða þegar þú vilt gefa frá hluti sem þú þarft ekki lengur.
Nokkrar fleiri umhverfisvænar tillögur að skógjöfum fyrir bræðurna þréttán:
- Piparkökuhús til að setja saman og skreyta.
- Vasaljós til að fara með í ævintýralega kvöldgöngu t.d. í Elliðarárdalinn.
- Fræ eða rúsínur til að gefa fuglunum.
- Persónulegt bókamerki frá uppáhalds jólasveininum.
- Gjafabréf fyrir kakóbolla á kaffihúsi.
- Bókasafnskort (ókeypis fyrir börn).
Nánari upplýsingar veitir:
Atli Pálsson, sérfræðingur
atli.palsson@reykjavik.is | 411-6170