Saxófóndúettinn Saxi & Sachsi flytur lifandi lyftutónlist kryddaða með þjóðlegum fróðleik ásamt því að greina frá samanburðarrannsóknum á stöðu saxófónsins að fornu og nýju með sérstakri áherslu á íslenskar fornbókmenntir.
Veigar og veitingar í boði á kaffihúsinu Ými.
Saxi og Sachsi | Menningarnótt í Eddu
Edda - Hús íslenskunnar, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 16:15
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.
-
Saxi & SachsiEineggja saxófóndúettinn Saxi & Sachsi leikur eigin lyftuútsetningar á nokkrum af perlum saxófónbókmenntanna auk annarra dýrgripa úr tónlistarsögunni.