Ingólfsfest
ingólfsstræti 6, Ingólfsstræti 6, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 12:00
Á Menningarnótt mun Ingólfsstræti í Reykjavík taka á sig nýja mynd. DJ Eisi í samstarfi við Reykjavíkurborg, Tuborg Léttöl og Exton kynna: Ingólfsfest! Viðburðurinn er haldinn í fyrsta sinn og verður nóg um að vera og fjölbreytt dagskrá fyrir alla aldurshópa. Á Ingólfsfest koma fram: DJ Eisi, Inspector Spacetime, ISSI, NUSSUN og HÚGÓ, ásamt fleirum. Meðan á tónleikum stendur ætla fyrirtæki á svæðinu að vera með kynningu á starfsemi sinni. Meðal annars tískusýning, listasýning og vörukynningar, ásamt fleiri skemmtilegum uppákomum. Öll velkomin, hvort sem þú átt leið hjá eða vilt vera með okkur allan daginn.
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.