Dægurflugur í hádeginu I Jólalög í anda Django Reinhardt

Dægurflugur í hádeginu I Jólalög í anda Django Reinhardt

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

fös 4. des 2026 12:15

Bústaðu viðburðinn!

Borgarbókasafnið Gerðubergi I Föstudaginn 4. desember kl. 12.15-13:00
Borgarbókasafnið Spönginni I Laugardaginn 5. desember kl. 13:15-14:00
Komdu og njóttu heillandi jólastundar í Borgarbókasafninu með GH Gypsy Tríói.
Á þessum tónleikum verða flutt jólalög úr ýmsum áttum sem þeir Gunnar Hilmarsson, Jóhann Guðmundsson og Leifur Gunnarsson spila í anda Django Reinhardt.
Lögin eru sett fram í jassaðri og sveiflukenndri útsetningu og eru innblásinni af hinum kraftmikla og rómantíska gypsy-jazz stíl.
Fullkomin leið til að komast í hátíðarskap og njóta tónlistar sem sameinar jólalega hlýju og lifandi jasshefð.
Gunnar Hilmarsson Gítar
Jóhann Guðmundsson Gítar
Leifur Gunnarsson Bassi
Gunnar Hilmarsson Tríó (GHT) spilar swing tónlist með tveimur gítörum og kontrabassa. Innblástur að hljómgrunninnum er fenginn frá Róma-gítarleikaranum Django Reinhardt.
Á fyrri hluta 20. aldar lagði Reinhardt grunninn að jazz gítarstíl sem í dag er kenndur við hann og er enn í stöðugri þróun. Hljómsveitin hefur einnig verið að máta nýrri lög við þennan búning og tekist vel til. Í janúar 2018 spilaði GHT á Djangohátíðí Amsterdam í Hörpu þeirra Hollendinga: Bimhuis, við góðar undirtektir.
Um tónlistarmennina:
Gunnar lauk burtfararprófi úr tónlistarskóla FÍH vorið 2009 og hefur verið virkur í tónlistarlífi landans undanfarin ár með ýmsum jazz og rokksveitum. Auk þess hefur hann spilað vítt og breitt um allt Bretland með fiðluleikaranum Dan Cassidy (bróður Evu Cassidy) og kvartett hans. Gunnar leiðir einnig hljómsveit sem spilar jazz í anda Django Reinhardt (jazz monouche) og hefur spilað með mörgum af helstu listamönnum þess geira, m.a. Robin Nolan og Andreas Oberg. Gunnar kennir auk þess við þrjá tónlistarskóla í Reykjavík.
Jóhann Guðmundsson stundar nám við tónlistarskóla FÍH ásamt því að vera í meistaranámi við Háskóla Íslands. Jóhann hefur verið meðlimur hljómsveitarinnar Hrafnaspark frá upphafi og gaf sveitin út
samnefndan disk haustið 2006. Einnig hefur Jóhann aðstoðað við framkvæmd á DjangoJazz hátíð á Akureyri ásamt því að spila á hinum ýmsu hátíðum á Íslandi.
Nánar um Leif Gunnarsson: https://lgtonar.com/
Ókeypis aðgangur og öll velkomin
Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Leifur Gunnarsson, leifurgunnarsson@gmail.com