Ásamt Hinu íslenska púslsambandi ætlar Borgarbókasafnið í Úlfarsárdal að bjóða upp á púslhittinga á fimmtudagskvöldum.
Hér er tilvalið að taka með sér púsl að heiman og eiga notalega stund í skemmtilegum hópi. Einnig verða nokkur púsl á staðnum fyrir þau sem eru að byrja. Þótt ekki verði púsl sérstaklega fyrir börn á staðnum, er fólki velkomið að taka með sér púsl fyrir börnin sín.
Púslhittingarnir eru einnig tilvalið tækifæri fyrir áhugasöm til að skiptast á púslum.
Notaleg stemning verður á safninu og kaffi og te í boði fyrir þau sem vilja.
Endilega lítið við!
Nánari upplýsingar:
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is
Puzzle Meetups
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 124, 113 Reykjavík Kort
fim. 08.10.2026 19:00