Fljúgandi Reykjavík – AcroYoga fyrir alla

Fljúgandi Reykjavík – AcroYoga fyrir alla

Klambratún, Klambratún, 105 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 12:00

Fljúgandi Reykjavík – AcroYoga fyrir alla er lifandi, sjónrænn og fjölskylduvænn hreyfilistarviðburður sem fer fram utandyra í hjarta Reykjavíkur á Menningarnótt. Markmiðið er að kynna AcroYoga fyrir borgarbúum og gestum hátíðarinnar með blöndu af sýningu, opinni smiðju og léttum þátttökuæfingum fyrir almenning.
AcroYoga er blanda af yoga, jafnvægislistum, fimleikum, dansi, leik og sirkuslistum. Í stað þess að vera hefðbundin sviðssýning þar sem áhorfendur horfa aðeins á úr fjarlægð verður viðburðurinn lifandi rými þar sem fólk getur stoppað, horft, spurt, prófað og tekið þátt á eigin forsendum. Þannig verður viðburðurinn bæði menningarleg upplifun og opin samfélagsleg samverustund.

Flytjendur

  • Menningarnótt
    Menningarnótt

    Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.