Komdu og fagnaðu annarri útgáfu Seiglazine með okkur í Skáldu bókabúð á Vesturgötu miðvikudaginn 5. ágúst kl. 17:00.
Höfundar kynna ritið og léttar veitingar verða í boði.
Öll hjartanlega velkomin, við hlökkum til að sjá ykkur!
Seiglazine er árlegt tímarit gefið út í tengslum við Seiglu. Fyrsta tölublað ritsins kom út í ágúst 2025. Seiglazine er ritstýrt af Ernu Völu Arnardóttur, hannað af Lee Marable.
Útgáfuhóf Seiglazine
Skálda bókabúð, Vesturgata 10, 101 Reykjavík Kort
mið. 05.08.2026 17:00
Í ritinu má finna aðsendar greinar, smásögur, ljóð, myndir og teikningar, hugleiðingar, slúður, verkalista og ýmislegt fleira sem berst ritinu í gegnum opið kall. Auk þess er þar að finna hátíðardagskrá Seiglu, yfirlit yfir alla viðburði hátíðarinnar, og upplýsingar um viðburðina og efnisskrár ásamt upplýsingum um flytjendur hátíðarinnar.
Hægt er að kaupa eintök með því að hafa samband við zine@seiglafestival.com, eða á varningsborði á Seiglu í Hörpu yfir helgina 7.-9. ágúst. Seiglazine er einnig til sölu í bókabúðinni Skáldu á Vesturgötu, Bókakaffinu í Ármúla og hjá Forlaginu.

Flytjendur
-
Seigla
Tónlistarhátíðin Seigla