Samtal í g-moll
Gljúfrasteinn, Gljúfrasteinn, 270 Mosfellsbær Kort
sun. 02.08.2026 16:00
Verið velkomin á næstu stofutónleika Gljúfrasteins. Á tónleikunum flytja og kynna sellóleikarinn María Qing Sigríðardóttir og píanóleikarinn Ásta Dóra Finnsdóttir sónötu Beethovens fyrir selló og píanó í g-moll.
Verkið telst meðal merkustu framlaga Beethovens til kammertónlistar fyrir þessa hljóðfæraskipan og einkennist af lifandi og kraftmiklu samtali sellós og píanós, þar sem hljóðfærin standa jafnfætis og móta tónlistina í sameiningu.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16 sunnudaginn 2. ágúst og aðgangseyrir er 3.900 krónur. Miðar eru seldir í afgreiðslu Gljúfrasteins.
Hér eru upplýsingar um staðsetningu safnsins, aðgengi og bílastæði: https://gljufrasteinn.is/is/um_gljufrastein/fyrir_gesti/stadsetning_gljufrasteins/
Hér eru upplýsingar um alla stofutónleika Gljúfrasteins 2026: https://gljufrasteinn.is/is/um_gljufrastein/vidburdir/stofutonleikar/stofutonleikaroe_2026/
Ásta Dóra Finnsdóttir, 19 ára, hóf píanónám samkvæmt Suzuki-aðferðinni fjögurra ára gömul og stundaði það til ellefu ára aldurs. Kennarar hennar voru Anna Fossberg Kjartansdóttir og Kristinn Örn Kristinsson. Frá hausti 2017 stundaði hún samhliða píanónám á Íslandi og í Noregi fram til vorsins 2024 hjá Marinu Pliassovu við Barratt Due tónlistarskólann í Osló.
Ásta Dóra var jafnframt nemandi við Menntaskóla í tónlist hjá Peter Máté frá 2018 til 2025 og útskrifaðist með stúdentspróf vorið 2025, átján ára gömul. Haustið 2025 hóf hún nám við Curtis Institute of Music í Fíladelfíu í Bandaríkjunum, hjá Ignat Solzhenitsyn.
Hún þreytti frumraun sína sem einleikari 14 ára, með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2021. Hún hefur jafnframt tekið þátt í fjölmörgum píanókeppnum og námskeiðum, þar á meðal Samson Francois-keppninni í Frakklandi og Van Cliburn Junior Piano Festival and Competition í Texas, BNA.
María Qing Sigríðardóttir (f. 2004) er eftirsóttur sellóleikari sem kemur reglulega fram víða um Evrópu. Síðastliðið ár kom hún fram á tæplega sjötíu margbreytilegum tónleikum.
María hefur sérstaka ástríðu fyrir kammertónlist og því að kanna mismunandi tónlistarstíla í samvinnu við aðra tónlistarmenn. Hún leggur einnig mikla áherslu á að miðla tónlist á fjölbreytta vegu til almennings, einkum sem styrkhafi Yehudi Menuhin Live Music Now.
Sem sigurvegari Ungra einleikara 2024 lék María Qing einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands (S.Í) undir stjórn Petri Sakari. Hún hefur einnig komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins. Árið 2025 var María starfsnemi (50% starfshlutfall) í Philharmonisches Staatsorchester Mainz og meðlimur Ungsveitar S.Í. á árunum 2019 til 2022.
María hóf sellónám sitt fimm ára og stundar nú nám hjá Próf. Conradin Brotbek við tónlistarháskólann í Stuttgart. Vorið 2022 lauk hún framhaldsprófi í sellóleik frá Tónskóla Sigursveins. Kennarar hennar þar voru Gunnar Kvaran, Örnólfur Kristjánsson og Ólöf Sigursveinsdóttir.
Flytjendur
-
María Qing Sigríðardóttir
Soloist, cellist, and winner of Ungra einleikara 2024.
-
Vortónar - Ásta Dóra Finnsdóttir - flytur spennandi efnisskrá á píanó
Píanóleikari og styrkþegi Tónlistarsjóðs Rótarý.