Litrófan Art market 21st november

Litrófan Art market 21st november

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

lau 21. nóv 2026 12:00

Bústaðu viðburðinn!

Við ætlum að fylla Borgarbókasafnið í Grófinni af litum, list og sköpun laugardaginn 21. nóvember!
Á markaðnum kemur saman fjölbreyttur hópur hinsegin og/eða skynsegin listafólks með alls konar list, handverk, prentverk, límmiða, skartgripi og margt fleira.
Hvort sem þú ert að leita að einstökum jólagjöfum, langar að styðja við sjálfstætt listafólk eða bara kíkja við og njóta stemningarinnar, þá ertu hjartanlega velkominn! 🌈
💜 Hvað er Litrófan?
Litrófan varð til út frá löngun til að skapa rými þar sem hinsegin og skynsegin listafólk gæti komið saman, sýnt verkin sín og fundið samfélag.
Það sem byrjaði sem listamarkaður hefur síðan vaxið í félagasamtök sem vinna að því að skapa fleiri tækifæri fyrir listafólk og stuðla að aðgengilegri og inngildandi menningarviðburðum.
Okkur langar að skapa rými þar sem fólk getur verið það sjálft, tekið þátt á sínum forsendum og upplifað gleðina sem fylgir því að skapa og tengjast öðrum.
♿ Aðgengi
Við leggjum áherslu á að skapa umhverfi þar sem aðgengi er ekki hindrun. Skynvæna rýmið verður á sínum stað. ítarlegri upplýsingar verða kynntar síðar.
Aðgengis upplýsingar bókasafnsins: https://borgarbokasafn.is/adgengi-borgarbokasafnid-grofinni
✨ Hlökkum til að sjá ykkur!
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100

Flytjendur