Kvöldganga | Frá þvottalaugum í sundlaugar - Íslensk sundlaugamenning á skrá UNESCO
Laugardalur - Þvottalaugarnar, Sundlaugavegur 30, 105 Reykjavík Kort
fim. 02.07.2026 20:00
Sundlaugamenning á Íslandi er einstök á heimsvísu. Árið 2023 var ákveðið að fara af stað með fyrstu sjálfstæðu tilnefningu Íslands á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Í desember 2025 var sundlaugamenning á Íslandi samþykkt inn á lista UNESCO. Sigurlaug mun tala um sögu og sérstöðu þessarar menningar og eins tilnefningarferlið sjálft og svara spurningum um ferlið og þessa viðurkenningu. Þá mun Helga Maureen fjalla um sögu þvottalauganna.
Gangan hefst við gömlu þvottalaugarnar í Laugardalnum og fer fram á íslensku. Gangan tekur um 1,5 klukkustund.
Gangan er hluti af viðburðaröðinni Kvöldgöngur en að henni standa Borgarsögusafn, Borgarbókasafn, Listasafn Reykjavíkur og Reykjavík Bókmenntaborg Unesco. Göngurnar fara fram á fimmtudögum yfir sumarmánuðina. Kvöldgöngurnar eru gjaldfrjálsar og öll eru hjartanlega velkomin.
Flytjendur
-
Sigurlaug Dagsdóttir
Samningur UNESCO um varðveislu menningarerfða
-
Helga Maureen GylfadóttirLes texta.
-
Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum
Eitt safn á fimm frábærum stöðum. Borgarsögusafn heyrir undir Reykjavíkurborg.
-
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur leggur rækt við mannlífið í borginni á fjölbreyttan hátt.
-
Kvöldgöngur
Sumarkvöldgöngurnar 2025 hefjast 19. júní.