Emmsjé Gauti í Landsbankanum

Emmsjé Gauti í Landsbankanum

Landsbankinn, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 16:30

Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 24. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að venju upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Fjörið fer fram bæði í Reykjastræti og við Hörputorg, þar sem Landsbankinn stendur fyrir dagskrá í samstarfi við Hörpu.
Emmsjé Gauti slær botninn í dagskrána
Emmsjé Gauti stígur á svið á Menningarnótt og slær botninn í dagskrá Landsbankans með kraftmiklum tónleikum. Gauti hefur um árabil verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins og er þekktur fyrir líflega sviðsframkomu og lög sem flestir ættu að kannast við.
Það má því búast við frábærri stemningu og miklu fjöri þegar Emmsjé Gauti tekur við sviðinu og lokar Menningarnótt hjá Landsbankanum.
Á svæðinu verður einnig nóg um að vera – boðið verður upp á blöðrur, candy floss, popp og fleira skemmtilegt. Sproti verður að sjálfsögðu líka á svæðinu!
Heildardagskrá í Landsbankanum á Menningarnótt:
13.30 – Lalli töframaður
14.30 – Hnokkar og sveifluball
15.30 – Sólon og Dimma dúskur
16.30 – Emmsjé Gauti

Flytjendur