Verið velkomin á sögustund og föndur á bókasafninu. Við ætlum að koma okkur vel fyrir á safninu og hlusta á skemmtilega sögu. Að lestri loknum verður hægt að setjast niður og föndra skemmtilegar sjálfsmyndir í ramma.
Tilvalin samverustund fyrir fjölskylduna en forráðamenn eru vinsamlegast beðnir um að hjálpa sínum börnum með föndrið ef þörf er á.
Öll velkomin og kaffi á boðstólum fyrir fullorðna fólkið!
Nánari upplýsingar veitir,
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is
Sögustund og föndur
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 124, 113 Reykjavík Kort
lau. 19.09.2026 12:00