Sunnudagur til sælu - Guðsþjónusta

Sunnudagur til sælu - Guðsþjónusta

Árbæjarsafn, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík Kort

sun. 23.08.2026 13:00

Verið velkomin á Árbæjarsafn sunnudagana 14. júní, 26. júlí og 23. ágúst kl. 13–16.
Þar gefst einstakt tækifæri til að kynnast fyrri tímum í lifandi umhverfi. Gestir fá að kynnast fjölbreyttum störfum og daglegu lífi fólks hér áður fyrr. Harmonikkuleikur mun óma um safnsvæðið en þar ganga einnig landnámshænur lausar.
Guðsþjónusta verður í litlu safnkirkjunni kl. 14. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson þjónar fyrir altari.

Dillonshús Café verður opið og býður upp á ljúffengar veitingar í notalegu umhverfi.
Öll velkomin!
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.
Öll bílastæði eru ókeypis.

Flytjendur