Gömlu íslensku jólafólin - Fróðleikur og ljótar sögur
Borgarbókasafnið | Menningarhús Kringlunni, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort
fim 3. des 2026 17:30
Bústaðu viðburðinn!Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson þjóðfræðingar af Ströndum rifja upp næstum því gleymdar sögur um íslensku jólafólin.
Flestir þekkja gamlar og ljótar sögur um Grýlu sem var hryllileg mannæta og jólasveinana sem forðum voru til vandræða hvar sem þeir komu. Sumir í fjölskyldunni eru samt að mestu gleymdir líkt og fyrri eiginmenn Grýlu og jólasveinar eins og Lungnaskvettir, Flórsleikir eða Flotnös.
Sagt verður frá óhugnanlegum sögum og þjóðtrú um Grýlu og hennar hyski. Sumt af því hentar varla mjög ungum börnum eða viðkvæmum sálum en öll sem þora eru hjartanlega velkomin!
Heimasíða viðburðar: https://borgarbokasafn.is/events/aaeed8a0-f0a7-4545-8e48-cdeb85953f91,20261203
Nánari upplýsingar veitir:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | s. 411 6204