Götumyndir

Götumyndir

Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

sun. 06.09.2026 13:00

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Götumyndir í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur föstudaginn 24. júlí kl. 16-18. Veitingar í boði.
Götumyndir nefnist fimmta sýning félaga úr Fókus – Félagi áhugaljósmyndara sem mun taka yfir sýningarrýmið SKOTIÐ árið 2026.
„Vegir liggja til allra átta, á þeim verða skil;… ” Þetta textabrot, úr ljóði Indriða G. Þorsteinssonar, gæti átt við götuljósmyndun. Um er að ræða vítt hugtak sem oft fangar hversdaglega atburði og athafnir í daglegu lífi ókunnugs fólks.
Faðir götuljósmyndunar, Henri Cartier-Bresson, lýsti henni þannig í viðtali: „Það er þetta skapandi brot úr sekúndu þegar þú tekur mynd. Augu þín sjá samsetningu eða tjáningu sem lífið býður upp á og þú verður að vita með innsæi hvenær á að smella af á myndavélinni. Það er augnablikið þegar ljósmyndarinn er skapandi.”
Sýnendur eru:
• Einar Valur Einarsson
• Einar Örn Jónsson
• Ingunn Mjöll Sigurðardóttir
• Jón Bjarnason
• Stefán Hrafn Jónsson
• Þóroddur Steinn Skaptason
Sýningar FÓKUS árið 2026 verða alls sjö með mismunandi þemu. Sýnendur verða 47 talsins og hver sýning stendur yfir í sex vikur.
Það er spennandi ár framundan – ekki missa af forvitnilegu og fjörugu ári í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur!📸
📸 Jón Bjarnason, Götumyndir, 2026

♿ Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu
Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).
Gjaldskyld bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.

Flytjendur