Grunnnámskeið í Öryggi og björgun: Hluti 1 - Rafrænn Laugarvörður

Grunnnámskeið í Öryggi og björgun: Hluti 1 - Rafrænn Laugarvörður

mán 19. okt 2026 16:30

Laugarvörðurinn fjarnámskeið, rafrænt námskeið fyrir laugaverði á sund- og baðstöðum. Námskeiðið er Hluti 1 af Grunnnámskeiði. Fyrirtæki og stofnanir geta skráð þátttakendur og fengið reikning sendan. Mikilvægt er að skrá kostnaðarstað og tengilið við skráningu. Lengd námskeiðs er 6 klukkustundir í heildina. Námskeiðið er kennt rafrænt gegnum Teams, þátttakendur geta því tekið námskeiðið að heiman. ATH! Til að ljúka námskeiðinu þurfa þátttakendur að vera með kveikt á myndavél og taka þátt í umræðum á meðan á námskeiði stendur. Þátttakendur eru hvött til að vera með tilbúið nesti og drykk meðan á námskeiði stendur. Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt. Leiðbeinandi: Katrín Ruth Allar nánari upplýsingar á bjorgun@redcross.is.