Hannyrðastund í Úlfarsárdal
Borgarbókasafnið | Menningarhús Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122, 113 Reykjavík Kort
þri 13. okt 2026 13:00
Ert þú algjör prjónasnillingur, byrjandi í hekli eða lengra kominn í krossaumi? Skiptir ekki öllu, samveran og félagskapurinn er gefandi. Borgarbókasafnið Úlfarsárdal býður upp á notalegan samastað til þess að hittast með handavinnuna, fá sér kaffi og spjalla um daginn og veginn alla þriðjudaga frá kl. 13:00-15:00. Á safninu er úrval af bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim. Engin skráning - Öll velkomin!
Nánari upplýsingar