Haustfrí á Kjar­vals­stöðum | Opin hesta­smiðja og ratleikur á Kjar­vals­stöðum

Haustfrí á Kjar­vals­stöðum | Opin hesta­smiðja og ratleikur á Kjar­vals­stöðum

Kjarvalsstaðir, Flókagata 24, 105 Reykjavík Kort

fim 22. okt 2026 10:00

Bústaðu viðburðinn!

Komið í heimsókn á Kjarvalsstaði í haustfríinu, skoðið listina og skapið saman í Hvammi!

Í austurenda Kjarvalsstaða er Hvammur, barna- og fjölskyldurými þar sem gestir geta komið við, skoðað bækur og látið sköpunargleðina njóta sín. Í haustfríinu verður þar opin hestasmiðja þar sem börn og fjölskyldur geta skapað sína eigin hesta með fjölbreyttum efniviði. Í rýminu eru einnig nokkur listaverk tengd hestum sem geta orðið kveikja að eigin sköpun.

Á Kjarvalsstöðum verður einnig hægt að næla sér í ratleik um sýninguna Kjarval og 21. öldin og halda af stað í skemmtilega könnunarferð um sýninguna.

Gestir geta komið og farið að vild, dvalið stutt eða lengur og tekið þátt á sínum forsendum, einir, með öðrum eða í samveru ólíkra kynslóða.

Á öllum barna- og fjölskylduviðburðum Listasafns Reykjavíkur er gert ráð fyrir því að börn komi ásamt fullorðnum fjölskyldumeðlimum og njóti samverunnar.

Frítt inn á söfn Listasafns Reykjavíkur fyrir fullorðna í fylgd barna allt vetrarfríið og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir barnafjölskyldur.